Andlit
Við bjóðum uppá úrval andlitsmeðferða
Age Summum
Age Summum er einstaklega virk andlitsmeðferð sem vinnur gegn ótímabærum aldursbreytingum. Meðferðin örvar endurnýjun húðfrumna, stinnir og þéttir húðvefi.
• Djúphreinsun húðar til að undirbúa móttöku virkra efna og fjarlægja dauðar hornlagsfrumur af yfirborði húðar.
• Sérstakt serum með lífvirkum efnum borið á húðina til að örva endurnýjun húðfruma.
• Andlitsnudd með efnum sem stinna og þétta húðvefi.
• Andlitsmaski –sérstök gríma gegnbleytt virkum efnum til að endurheimta frískleika og heilbrigði húðar er lögð á andlitið í lokin. Meðferðin er hlaðin lífvirkum efnum í hverju þrepi og er einstaklega áhrifarík. Meðferðartími er 50 mínútur
LIFT SUMMUM
Einstök aðferð í andlitsmeðferð sem gerir húðina stinnari og dregur samstundis úr þreytu og öldrunarmerkjum í andliti, á hálsi og bringu. Meðferðin er í fjórum þrepum.
- Djúphreinsun húðar til að undirbúa móttöku virkra efna og fjarlægja dauðar hornlagsfrumur af yfirborði húðar með kornum og ensýmum. •
- Andlitsnudd fyrir hvert svæði (andlit, háls og bringu) er sérstakt nudd sem örvar húðveginn. Húðin verður samstundis þéttari og fær lyftingu. Virku innihaldsefnin í séruminu auka mýkt húðar.
- Virkt serum sem jafnar út áferð húðarinnar. Með bæði efnafræðilegri og líffræðilegri virkni. Dregur úr hrukkum; augnsvæði, enni, broslínur og háls verða sléttari.
- Andlits-háls og bringu maski sem styrkir húðina. Endurheimtir mýkt, glóa og húðin verður unglegri.
Hydra peeling
- Nudd með kröftugum endurnýjandi lífvirkum efnum úr jurtaríkunu
- Kælandi og róandi gúmmímaski
Hydraderm cellular energy
HYDRADERMIE
Er mjög árangursrík djúphreinsi-og rakameðferð fyrir andlit, háls, bringu og hina viðkvæmu húð umhverfis augun. Hún er byggð á áratuga rannsóknum sérfræðinga í efnafræði snyrtivara við GUINOT rannsóknarstofur í Frakklandi, sem eru meðal þeirra allra fremstu á sínu sviði.
Hydradermie:
- örvar efnaskipti húðar sem leiðir til örari endurnýjun frumna og húðin fær aukinn raka og mýkt.
- þéttir húðina og gefur henni fallegri áferð.
- djúphreinsar húðina, mjög góður árangur með slæma bóluhúð.
- stuðlar að rakajafnvægi og réttu sýrustigi húðar. Hydradermie er fyrir alla aldurshópa því notuð eru mismunandi gel eftir húðgerðum, allt eftir þörfum viðkomandi.
Hydra peeling
- Dregur úr sjáanlegum aldursbreytingum
- Eykur endurnýjun húðar og viðheldur virkri starfsemi húðvefja
- Eykur útgeislun húðar
- Dregur úr brúnum litabreytingum
- Gefur bjartari ásýnd
HYDRADERMIE LIFT
Andlitslyfting. Meðferðin byggist á vöðva- og sogæðaörvun ásamt andlits- og herðanuddi. Árangur meðferðar sést greinilega strax eftir eitt skipti.
- Vöðvaörvun eykur stinnleika andlits- og hálsvöðva sem leiðir til sléttari húðar, lyftingu og mótunar andlitsins. Húðin verður stinnari og unglegri.
- Sogæðaörvun eykur úrgangsefnalosun húðvefja sem dregur úr þrota og baugum. Hreinsunarhlutverki húðar er aukið sem leiðir til aukinnar frumustarfsemi og hraðari endurnýjun frumna.
EYE LOGIC
Augnmeðferð gegn hrukkum, þrota og baugum. Meðferð í þremur þrepum
- Jónun með sérstöku jónísku geli fyrir augnsvæðið sem eykur úrgangsefnalosun og hindrar þrota, minnkar dökka bauga, styrkir og endurnýjar frumustarfsemi húðar
- Nudd með augnserumi hlaðið lífvirkum efnum sem stinna,lyfta og örva smáæðastarfsemi húðar og virkja úrgangefnalosun húðvefja
- Augnmaski sem veitir húðfrumum endurnýjandi og lyftandi lífvirk efni
HYDRA SUMMUM
HYDRA SUMMUM ANDLITSMEÐFERÐIN ER RÍK AF HÝALÚRONSÝRU SEM ÞÉTTIR, SLÉTTIR OG GEFUR HÚÐINNI KRÖFTUGAN RAKA. MEÐFERÐIN ER GERÐ Í FJÓRUM SKREFUM. DJÚPHREINSUN, HYDRA SUMMUM ÞYKKNI STROKIÐ INN Í HÚÐINA, NUDD MEÐ HYDRA SUMMUM NUDDKREMI OG SÍÐAST MASKI. EINSTÖK MEÐFERÐ FYRIR ÞÁ SEM VILJA AUKIN ÞÉTTLEIKA Í HÚÐINA , DRAGA ÚR ALDURSEINKENNUM OG ENDURHEIMTA GÓÐAN RAKA OG MÝKT Í HÚÐINA.
ÉQUILIBRE PURETÉ
Andlitsmeðferð sem hreinsar húðina og kemur jafnvægi á hana, dregur úr húðlýtum, dregur úr fituglans og jafnar húðlitinn. Í meðferðinni er djúpreinsun, hreinsandi andlitsmaski, kreistun og Acni-Logic serum borið á húð.